Fréttir

Félagar innan VSFK ekki á leið í verkfall
Þriðjudagur 24. mars 2015 kl. 14:18

Félagar innan VSFK ekki á leið í verkfall

Mikið hringt á skrifstofuna vegna yfirvofandi verkfalla verkafólks.

„Mjög mikið er hringt og haft samband við skrifstofur félaga innan VSFK vegna stöðunnar í kjarasamningum félagsins og Flóabandalagsfélaganna. Mikilvægt er að upplýsa á þessari stundu að Flóabandalagsfélögin eru enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins þar sem verið er að ræða fjölmörg mál ýmissa samninga. Að þessu sinni er á Suðurnesjum aðeins verið að kjósa um hvort að af verkfalli verði í Sandgerði og Grindavík,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður VSFK. Samningamál séu enn í höndum samninganefnda Flóafélaganna.

Kjarasamningar ennþá undir stjórn félaganna og SA

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Kristján vill einnig minna á að kröfugerð Flóafélaganna geri ráð fyrir eins árs samningstíma enda ekki traust til staðar gagnvart ríkisvaldi varðandi samninga til lengri tíma.

 Bæði sé um að ræða aðalkjarasamninga við SA, tengda samninga, sérkjarasamninga og fyrirtækjasamninga. „Ennþá eru kjarasamningar undir stjórn félaganna og SA og þeim hefur ekki verið vísað til sáttasemjara. Ef samningaviðræður reynast árangurslausar kemur að því að félögin vísa málum til sáttasemjara og í framhaldi af því munu félögin eflaust ræða hvort boða eigi til verkfalla til að þrýsta á kröfur félagsmanna. En meðan málin eru í viðræðufarvegi, eru verkfallsmál í biðstöðu.“

Þannig séu öll samningamál félaganna í höndum stóru samninganefndarinnar en þar séu teknar ákvarðanir um framvindu samninganna og ákvarðanir um verkfallasboðanir ef til þeirra kemur.
 „Allar verkfallsboðanir byggja á atkvæðagreiðslum viðkomandi hópa félaganna, stjórnum félaganna og samninganefndar Flóabandalagsins í samræmi við lögin um stéttarfélög og vinnudeilur.

 Frekari upplýsingar er varða breytingar á stöðunni verða kynntar á heimasíðu félagsins,“ segir Kristján.