Fékk stálbita í andlitið
Það óhapp varð um borð í bát að einn skipverja fékk stálbita í andlitið. Maðurinn stóð fyrir aftan annan skipverja sem hélt á stálbitanum. Þegar sá síðarnefndi snéri sér snögglega við lenti stálbitinn í andliti vinnufélaga hans. Lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á vettvang og ræddu lögreglumenn við málsaðila.
Tvær tennur höfðu brotnað í skipverjanum sem fyrir stálbitanum varð, en að öðru leyti slapp hann ómeiddur.