Fékk kynningu á loftrýmisgæslu flughersins
Eins og Suðurnesjamenn urðu varir við sinnti flugher Bandaríkjanna loftrýmisgæslu hér á landi fyrir Nato og notaði við það meðal annars fjórar Phantom orrustuþotur.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fékk á dögunum kynningu á verkefninu. Á meðfylgjandi mynd er hann ásamt liðsforingja flugdeildarinnar, Mark Sadler og fulltrúum Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli, þeim Jóni B. Guðnasyni og Georg Friðrikssyni.