Fékk hjartverk úti á sjó
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kvöldmatarleytið í gær vegna manns með hjartverk um borð í línubát sem var að veiðum um 18 sjómílur V af Garðsskaga. Fór TF-EIR í loftið kl. 19:17, komið var að bátnum kl. 19:33 þar sem stýrimaður og læknir sigu niður í bátinn og undirbjuggu sjúkling fyrir flutning. Var sjómaðurinn hífður upp í börum og haldið beint á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabifreið beið og flutti manninn á Landspítalann við Hringbraut.
Mynd úr safni