Bygg
Bygg

Fréttir

Fékk Grænfánann í afmælisgjöf
Þegar Grænfánanum var fagnað þótti ástæða til að faðma fánastöngina.
Laugardagur 26. september 2015 kl. 08:54

Fékk Grænfánann í afmælisgjöf

– Leikskólinn Háaleiti á Ásbrú fagnaði 7 ára afmæli

Leikskólinn Háaleiti á Ásbrú hélt upp á sjö ára afmæli sitt á dögunum. Ýmislegt var gert í tilefni afmælisins og þá fékk leikskólinn afhentan Grænfánann.

Börnin á leikskólanum byrjuðu daginn á árlegu Háaleitishlaupi. Eftir hlaupið fengu öll börnin  viðurkenningarverðlaunapening sem var afhentur við hátíðlega athöfn inn í sal fyrir hádegi. Verðlaunapeningana höfðu börnin á Djúpa- og Kotvogi gert nokkrum dögum áður í listasmiðjunni.

Góðir gestir mættu í afmæli leikskólans, foreldrar, fyrrum nemendur, starfsfólk fræðsluskrifstofunnar, starfsfólk og eigandi Skóla ehf., skólastjórar í Reykjanesbæ og síðast en ekki síst Kjartan Már bæjarstjóri og hljólbörubandið. Bandið lék fyrir fyrir gesti nokkur vel valin lög. Þá var tekið formlega á móti Grænfánanum.

„Það er óhætt að segja að það hafi verið mikil gleði meðal starfsfólks og barnanna að hafa náð þessum áfanga en honum náðum við með því að gera umhverfisvernd að föstum þætti í skólastarfinu. Á umhverfisfundi með börnunum í vor ræddum við um hvað hægt væri að gera fyrir umhverfið og þá komu margir áhugaverðir og góðir punktar frá börnunum. Úr þessum punktum sömdum við umhverfissáttmálann okkar og settum hann í lag sem flutt var af þessu tilefni,“ segir í frétt frá Háaleiti.


Grænfáninn afhentur formlega í leikskólanum Háaleiti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn