Fékk glas í ennið og endaði á sjúkrahúsi

Árásarþolinn vildi ekki upplýsa um árásarmanninn þannig að allt bendir til þess að málið verði ekki kært. Engin vitni voru að málinu.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Hann var auk þess að aka réttindalaus.
Fleiri verkefni komu til kasta lögreglunnar á vaktinni. Má þar nefna eftirlit með fólki sem er grunað um fíkniefnamisferli, heimiliófrið, brot á útivistarreglum, minniháttar líkamsárás á skemmtistað og brot á umferðarlögum.