Föstudagur 14. nóvember 2014 kl. 11:26
Fékk fiskikar í höfuðið
Starfsmaður hjá fiskvinnslufyrirtæki í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum slasaðist í vikunni þegar hann fékk fiskikar í höfuðið. Hann var fluttur til læknis til aðhlynningar, þar sem sauma þurfti átta spor í höfuð hans.