Fékk að sofa úr sér vímuna í fangahúsi

Nóttin var róleg en lögregla hafði afskipti af einum ökumanni á Reykjanesbraut vegna hraðaksturs. Mældist hraði hans 118 km þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.
Lögregla hafði afskipti af mjög ölvuðum manni á Hafnargötu í Keflavík og fékk hann að sofa úr sér vímuna í fangahúsi.