Bygg
Bygg

Fréttir

Fegrun opinna svæða gengur vel
Þriðjudagur 8. júlí 2003 kl. 14:13

Fegrun opinna svæða gengur vel

Starfsmenn Vinnuskóla Reykjanesbæjar vinna nú hörðum höndum við fegrun opinna svæða í bæjarfélaginu. Meðal helstu framkvæmda eru tyrfingar á þremur svæðum; við Heiðarbraut, Aðalgötu og Njarðarbraut. Þessar framkvæmdir ganga mjög vel og í næstu viku er gert ráð fyrir að þeim verði lokið við Heiðarbraut og Aðalgötu.Í næstu viku munu starfsmenn Vinnuskólans byrja að tyrfa meðfram Njarðarbraut, frá Grænás og út að Fitjum. Ökumenn eru beðnir um að sýna nærgætni við akstur hjá þessum svæðum.

Texti og mynd af vef Reykjanesbæjar, www.rnb.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn