Faxaflói: Skýjað og yfirleitt þurrt
Norðaustan og austan 8-15 m/s á Faxaflóasvæðinu, hvassast við ströndina. Skýjað og yfirleitt þurrt. Frost 1 til 8 stig, kaldast í uppsveitum.?
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 5-10, en heldur hvassara síðdegis. Skýjað og yfirleitt þurrt. Frost 2 til 6 stig.?
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag og miðvikudag:?Norðaustlæg átt, 10-15 m/s. Víða él eða dálítil snjókoma, en úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.
Á fimmtudag:? Útlit fyrir vaxandi austan og norðaustan átt með snjókomu. Heldur hlýnandi veður. ??
Á föstudag: ?Ákveðin norðan átt með snjókomu, en hægari um landið austanvert og úrkomuminna. Hiti um og undir frostmarki. ??
Á laugardag og sunnudag:? Útlit fyrir ákveðna norðvestlæga átt með éljum. Heldur kólnandi veður.?