HSS
HSS

Fréttir

Fastur í snjóruðningi
Föstudagur 13. janúar 2012 kl. 11:22

Fastur í snjóruðningi

Snjóinn tekur hratt upp í þeim leysingum sem hófust í gærkvöldi. Snjórinn er að mestu farinn af jafnsléttu og aðeins skaflar og ruðningar eftir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það var einmitt í einum slíkum ruðningi sem sorpbíll festist í gærdag og þurfti að kalla til stóran bíl til að draga sorpbílinn út úr ruðningnum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem við fengum frá lesanda.

Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri Kölku, hrósar þeim sem unnið hafa við sorphirðuna síðustu vikurnar. Frá því í síðustu viku nóvember og til dagsins í dag hefur verið mikill snjór á Suðurnesjum sem gerir sorphirðu seinlegri. Jón sagði hins vegar að litlar tafir hafi orðið og þeir sem unnið hafi að sorphirðunni hafi staðið sig með mikilli prýði.

Nú er það svo spurningin hvort leysingarnar sem eru nú nái að vinna á stærstu ruðningunum sem víða hafi hlaðist upp.