Fasteignamat hækkar um 28,3% á Suðurnesjum
- íbúðamatið hækkar um 41,1% í Reykjanesbæ og matssvæðið á Ásbrú hækkar um 98%
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 12,8% frá yfirstandandi ári og verður 8.364 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2019 sem Þjóðskrá Íslands birti í dag. Fasteignamatið hækkar á 99,2% eigna en lækkar á 0,8% eigna frá fyrra ári. Fasteignamatið byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2018. Það tekur gildi 31. desember 2018 og gildir fyrir árið 2019. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2018, segir í tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands.
Mest hækkun á Reykjanesi
Samanlagt mat íbúða (133.071) á öllu landinu hækkar um 12,7% frá árinu 2017 og verður alls 5.727 milljarðar króna. Á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í sérbýli meira en íbúðir í fjölbýli en á landsbyggðinni er þessu öfugt farið.
Fasteignamat hækkar mest á Reykjanesi en þar hækkar íbúðamatið um 41,1% í Reykjanesbæ, um 37,9% í sameinuðu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs og um 32,9% í Vogum.
Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 15% á landinu öllu; um 17,2% á höfuðborgarsvæðinu en um 9,9% á landsbyggðinni.
Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 11,6%, um 28,3% á Suðurnesjum, um 14,3% á Vesturlandi, 12,1% á Vestfjörðum, 11% á Norðurlandi vestra, 15% á Norðurlandi eystra, 9,5% á Austurlandi og um 13,7% á Suðurlandi.
Fasteignamat hækkar mest í Reykjanesbæ eða um 34,2%, um 25,5% í Vogum, um 21,1% í Hveragerði og 20,2% á Akranesi.
Mest hækkun íbúðarhúsnæðis í kringum höfuðborgarsvæðið
Meðalhækkun á mati íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er 10,3% og hækka flest svæði innan þess um 8-12%. Mun meiri hækkun má sjá í nágrannasveitarfélögum, þannig hækkar matssvæðið á Ásbrú um 98%, Sandgerði um 39%, Garður um 37%, Reykjanes dreifbýli um 35%, Hafnir um 35%, Keflavík og Njarðvík um 34%, Vogar um 33%, Hveragerði um 24% og Akranes og Selfoss um 22%.