Fasteignamarkaður: Sjö kaupsamningar á viku
Síðustu 12 vikurnar hefur að meðaltali 7 fasteignakaupsamningum verið þinglýst í hverri viku á Suðurnesjum. Á höfuðborgarsvæðinu er meðaltalið 35.
Meðaltalið á Akureyri er minna en á Suðurnesjum, eða fimm samningar á viku. Árborgarsvæðið er með þrjá samninga á viku að meðaltali. Þar var t.a.m. engun kaupsamningi þinglýst í síðustu viku. Á sama tíma var sjö samningum þinglýst á Suðurnesjum, þar af tveimur um eignir í fjölbýli og fimm eignum í sérbýli. Það vekur athygli þar sem mun meiri hreyfing hefur verið á eignum í fjölbýli.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá Fasteignaskrá Ríkisins.