Fasteignagjöld í Grindavík með þeim lægstu á landinu
Útreikningur gjalda byggir á þessu fasteignamati samkvæmt álagningarreglum ársins 2015 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Til fasteignagjald teljast fasteignaskattur, lóðarleiga, fráveitu-, vatns- og sorpgjöld. Eins og fyrri ár kemur Grindavík vel út úr þessum samanburði með 224 þúsund króna fasteignagjöld og er það hækkun um 4,08% frá árinu 2014. Á árinu 2015 eru gjöldin hæst á Húsavík, 329 þúsund krónur en lægst á Vopnafirði, 164 þúsund krónur.
Ef einungis eru tekin sveitarfélög sem hafa svipað fasteignamat og í Grindavík, en það eru Egilsstaðir, Selfoss, Borgarnes, Hveragerði, Sauðárkrókur, Stykkishólmur, Keflavík, Akranes og Vestmannaeyjar, þá er Grindavík með lægstu gjöldin eða 224 þúsund eins og fyrr greinir. Hveragerði kemur næst með 264 þúsund krónur. Stykkishólmur er að innheimta mest eða 318 þúsund krónur.
Sjá nánar á: http://www.byggdastofnun.is/is/utgefid-efni/grof-og-skrar