Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Farþegum WOW air fjölgaði um 49% í júlí
Þriðjudagur 15. ágúst 2017 kl. 14:11

Farþegum WOW air fjölgaði um 49% í júlí

WOW air flutti 318 þúsund farþega til og frá landinu í júlí eða um 49% fleiri farþega en í júlí árið 2016. Þá var sætanýting WOW air 90% í júlí í ár en aukning á framboðnum sætakílómetrum var 51%.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 1.5 milljón farþega en það er 103% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air flýgur nú til 32 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku og hefur yfir að ráða einn yngsta flugflotann í Evrópu en meðalaldur hans er 2,05 ár. Nýlega hófst áætlunarflug til Chicago í Bandaríkjunum og í næsta mánuði verður flogið til Tel Aviv en það er í fyrsta sinn í flugsögu Íslands sem beint áætlunarflug býðst til Ísrael.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024