Fréttir

Farþegum WOW air fjölgaði um 42% í ágúst
Miðvikudagur 20. september 2017 kl. 05:00

Farþegum WOW air fjölgaði um 42% í ágúst

WOW air flutti 322 þúsund farþega til og frá landinu í ágúst eða um 42% fleiri farþega en í ágúst árið 2016. Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt yfir 1.9 milljón farþega en það er 98% aukning á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air flýgur nú til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku. Nýlega hófst áætlunarflug til Tel Aviv í Ísrael. Þá hefur WOW air einnig bætt við fimm nýjum áfangastöðum í Bandaríkjunum; Dallas, Cleveland, Cincinnati, St. Louis og Detroit og hefst flug þangað næsta vor.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024