Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgar enn
				
				Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 11% í júlímánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 175 þúsund farþegum árið 2002 í tæplega 194 þúsund farþega nú.  Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er 14% milli ára.  Á sama tíma hefur farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkað um 7%.Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar því fjölgaði um tæplega 9% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr rúmlega 711 þúsund farþegum í rúmlega 773 þúsund farþega.
				
	
				
					
						
					
					
						
					
				
				
				 								
			




 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				