Mánudagur 31. janúar 2005 kl. 09:28
Farþegum til landsins fjölgar milli ára

Komum farþega til Íslands um Keflavíkurflugvöll fjölgaði um 18,6% á síðasta ári samkvæmt Hagvísum Hagstofu Íslands. Samtals komu 693.000 farþegar til Íslands í gegnum Keflavíkurflugvöll árið 2004 en árið 2003 voru þeir 584.000. Komufarþegum fækkaði um 4,8% árið 2002 og 3,9% árið 2001 eftir stöðuga fjölgun árin þar á undan.