Farþegum sem fóru um Leifsstöð fjölgaði í október
 Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 15% í október miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 118 þúsund farþegum árið 2003 í tæp 136 þúsund farþega nú.  Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 15% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 15%.
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 15% í október miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 118 þúsund farþegum árið 2003 í tæp 136 þúsund farþega nú.  Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 15% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 15%.   Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 20% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr tæpum 1.202 þúsund farþegum í tæplega 1.443 þúsund farþega. Frá þessu er greint á vef flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				