RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt
RNB Lýðheilsu og forvarnarvika 28. sept - 5 okt

Fréttir

Farþegum í ókeypis strætó fjölgar ört
Miðvikudagur 8. maí 2013 kl. 10:26

Farþegum í ókeypis strætó fjölgar ört

„Það er ánægjulegt að geta skýrt frá því að breytingarnar sem við gerðum á strætósamgöngum um áramót eru að skila 70% fjölgun farþega það sem af er þessu ári. Við höfum ekki séð jafn mikla fjölgun frá því að við hófum að bjóða ókeypis almenningssamgöngur fyrir alla fyrir 7 árum síðan, en þá tók notkunin einnig mikinn kipp“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri. Þetta er meðal þess sem kynnt er á íbúafundum sem nú standa yfir í Reykjanesbæ.

Samgöngukerfið byggir á fjórum leiðum. Á þremur leiðum er notast við almenningsvagna, þar sem ferðatíðni var aukin og ekið lengur fram á kvöld og um helgar. Fjórða leiðin er síðan leigubílaþjónusta við Hafnir á Reykjanesi, þar sem ekið er eftir leiðar- og tímakerfi eins og í öðrum hverfum, en notast við leigubíla. Miðja kerfisins verður nú færð að Krossmóum, sem eru við svokallaða Þjóðbraut og við eitt helsta þjónustusvæði bæjarins.
 

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025