Farþegum í Leifsstöð fjölgaði um þriðjung í febrúar

Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um 46%. Farþegafjöldi í febrúarmánuði hefur ekki verið svo mikill frá því mælingar hófust.
Samkvæmt upplýsingum frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur farþegum um flugstöðina fjölgað úr rúmlega 121 þúsund farþegum í tæplega 154 þúsund farþega eða um tæp 27% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003.