Farþegum fjölgar um tæp 15% í febrúar
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 15% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra, úr 85 þúsund farþega árið 2010 í rúmlega 97 þúsund farþega nú.
Farþegum til og frá Íslandi fjölgaði um 13% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um 29%.