Farþegum fjölgaði um tæp 30% í apríl
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 30% í apríl miðað við sama tíma í fyrra. Farþegafjöldinn fór úr 119 þúsund farþegum árið 2005 í tæplega 154 þúsund farþega nú.
Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 34% milli ára en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúm 7%.
www.flugstod.is