Farþegum fjölgaði um tæp 10% í júlí
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæp 10% í júlí miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 280 þúsund farþegum árið 2006 í rúmlega 309 þúsund farþega nú.
Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæpum 8% milli ára, en farþegafjöldi þeirra sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæp 22%.