Farþegum fækkar í Leifsstöð

Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um tæp 3% í júní miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 257 þúsund farþegum árið 2007 í 250 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fjölgaði um rúmlega 2% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæplega 31%.
Mynd: Þota Icelandair ekur inn á flughlað við Leifsstöð á dögunum. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				