Farþegum fækkaði um 36% í nóvember
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um tæp 36% í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, úr 143 þúsund farþegum árið 2007 í 92 þúsund farþega nú. Farþegum til og frá Íslandi fækkaði rúmlega um 37% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækkaði um tæp 25%.
Þetta kemur fram á vef Keflavíkurflugvallar.