Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Farþegi með fíkniefni í fórum sínum
Mánudagur 23. október 2017 kl. 10:09

Farþegi með fíkniefni í fórum sínum

Ökumaður um tvítugt sem ók út af á Vatnsleysustrandarvegi um helgina, með þeim afleiðingum að bifreið hans hafnaði á fiskikari og girðingu, var grunaður um að vera undir áfengisáhrifum við aksturinn.
Þá hafði lögreglan á Suðurnesjum afskipti af öðrum ökumanni, einnig um tvítugt, sem aldrei hafði öðlast ökuréttindi.
Þriðji ökumaðurinn sem lögregla stöðvaði var grunaður um fíkniefnaakstur og farþegi sem var með honum í bílnum var með fíkniefni í fórum sínum.
Loks voru þrír ákærðir fyrir of hraðan akstur.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024