Farþegaþotan farin
Ísraelska farþegaþotan sem lenti á Keflavíkurflugvelli í gær vegna bilunar er farin af landi brott. Um 400 manns voru um borð í vélinni og þurftu farþegarnir að bíða þar í fimm klukkustundir uns ákveðið var í gærkvöldi að flytja þá frá borði. Þeim var útveguð gisting á hótelum í Keflavík og á höfuðborgarsvæðinu. Farþegaþotan var á leið til New York.