Farþegar Icelandair þurftu á áfallahjálp að halda
Farþegar Icelandair sem komu frá Kaupmannahöfn í gærkvöldi þurftu á áfallahjálp að halda eftir sviptivinda.
Beiðni um aðstoð Rauða krossins barst frá Keflavíkurflugvelli klukkan 23 í gærkvöldi við lendingu flugvélarinnar frá Icelandair.
Samkvæmt vefsíðu Rauða krossins var flugvélin að koma frá Kaupmannahöfn, með 156 farþega um borð. Vélin gat hinsvegar ekki lent í Keflavík vegna sviptivinda og þurfti að fljúga til Akureyrar til að fylla á eldsneyti. Henni var svo lent í Keflavík um miðnætti.
Órói var meðal farþega og fóru tveir sjálfboðaliðar Suðurnesjadeildar Rauða krossins til aðstoðar og veittu sálrænan stuðning.