Farsíma stolið í sundmiðstöðinni

Ökumaður var í gær kærður fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við aksturinn og annar var kærður fyrir að aka án þess að nota bílbelti. Þá stöðvuðu lögreglumenn ökumann bifreiðar á Hafnargötunni sem hafði verið sviptur ökuleyfi. Maðurinn var kærður og á yfir höfði sér háa sekt. Rólegt var á næturvakt lögreglunnar í Keflavík.