Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Farga girðingunni við Patterson
Fimmtudagur 20. september 2018 kl. 17:41

Farga girðingunni við Patterson

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar auglýsir í dag eftir tilboðum í niðurrif og förgun á Patterson-girðingunni. Verkið felst í að taka upp, fjarlægja og farga girðingu, sem er umhverfis Pattersonsvæðið, sem er nálægt Fitjum í Reykjanesbæ.
 
Girðingin er netgirðing með gaddavír efst, girðingastaurar eru stálstaurar í steyptri undirstöðu og er lengd girðingarinnar um 8,5 kílómetrar. Áætlaður verktími er um tveir mánuðir, frá 3. október 2018 til 1. desember 2018.
 
Verkfræðistofa Suðurnesja er með útboðsgögn vegna málsins en tilboð verða opnuð föstudaginn 28. september nk.
 




 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024