Þriðjudagur 5. júní 2001 kl. 09:55
Farartæki upp á 1,4 milljarð á götum Njarðvíkur

Farartæki sem metið er á eittþúsund og fjögurhundruð milljónir ók um götur Njarðvíkur í gærdag.Þrjár Chinnook þyrlur Bandaríkjahers og tvær Blackhawk þyrlur voru dregnar frá hafnarbakkanum í Njarðvík upp á Keflavíkurflugvöll. Hver þyrla kostar 1,4 milljarð kr. Á Keflavíkurflugvelli verða þær notaðar við heræfingarnar Norðurvíking 2001 sem hefjast 18. júní nk. og lýkur um næstu mánarðamót. Þyrlunum var skipað upp úr skipi Atlantsskipa auk ýmissra annarra hergagna og sjúkrabíla.