Fannst kaldur og hrakinn
Ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbrautinni á milli Voga og Kúagerðis um tvöleytið í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. Hann hljóp síðan út í hraunið að því búnu en talið er að hann hafi vankast við veltuna.
Lögreglan var með talsverðan viðbúnað vegna þessa og var mannsins leitað í hrauninu í nótt. Var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars kölluð til aðstoðar við leitina og fannst maðurinn á sjötta tímanum eftir nokkurra klukkutíma leit.
Maðurinn var fluttur á slysadeild með þyrlunni til aðhlynningar en hann var orðinn talsvert kaldur og hrakinn, segir á mbl.is.