Fannst dáinn í ísskápnum

Húsráðanda í Reykjanesbæ var verulega brugðið í morgun þegar karlmaður fannst meðvitundarlaus hálfur inn í ísskáp á heimilinu. Maðurinn hafði ekki ratað inn í rétta íbúð í fjölbýlishúsi vegna ofurölvunar.
Svo virðist sem maðurinn hafi orðið svangur og ætlað að næla sér í eitthvað gott í gogginn innarlega úr voldugum amerískum ísskápi. Við það að stela úr ísskápnum virðist maðurinn hafa sofnað áfengissvefni og fannst þannig í morgunsárið.
Að sögn húsráðanda var ekki um neitt annað að ræða en að kalla til lögreglu sem fjarlægði manninn úr ísskápnum.





 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				