Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fallið frá hækkunum þjónustugjalda á barnafjölskyldur
Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Miðvikudagur 15. janúar 2014 kl. 16:12

Fallið frá hækkunum þjónustugjalda á barnafjölskyldur

Á fundi bæjarráðs Sandgerðisbæjar í gær var ákveðið að leggja til við bæjarstjórn að falla frá ákvörðunum um 3,9% hækkun gjaldskrár á leikskólagjöld, skólamat, tónlistarskólagjöld og skólaselsgjöld frá og með 1. febrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn Sandgerðisbæjar.

Bæjarráð telur mikilvægt að svara með þessum hætti ákalli frá aðilum vinnumarkaðarins og leggja sitt lóð á vogaskálarnar til að freista þess að efla kaupmátt og stöðugleika í þjóðfélaginu.

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024