Fréttir

Faldi lyf innvortis og í nærbuxum
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Föstudagur 10. nóvember 2017 kl. 13:09

Faldi lyf innvortis og í nærbuxum

Fjórir íslenskir komufarþegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar voru teknir af tollverðum um síðustu helgi, en þeir voru allir með umtalsvert magn af lyfseðilsskyldum lyfjum í fórum sínum.

Samtals voru á þriðja þúsund töflur haldlagðar, sem fólkið hafði ýmist falið í nærklæðum sínum, ytri fatnaði og/eða í farangri. Til viðbótar reyndist einn fjórmenninganna hafa komið stórri töflupakkningu fyrir innvortis sem hann losaði sig við eftir að hann hafði verið færður á lögreglustöð. Ekki liggur fyrir hve margar töflur pakkningin hafði að geyma.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Stór hluti lyfjanna sem haldlögð voru reyndust vera sterk morfínskyld lyf og einnig var um að ræða töluvert magn af sterkum örvandi lyfjum. Þessar lyfjategundir sem um ræðir eru háðar sérstöku eftirliti heilbrigðisyfirvalda og eru eftirritunarskyldar.

Á heimasíðu SÁÁ kemur fram í nýlegri úttekt að fleiri og fleiri mismunandi sérlyf, sem hafa að geyma ópíóíða eða morfínskyld efni, komi  inn á vímuefnamarkaðinn og gangi þar kaupum og sölum. Jafnframt að sjúklingar sem nota vímuefni í æð virðist nú sækja mest í svokölluð oxycodon lyf, en nokkur hundruð töflur af þeirri tegund voru haldlagðar um helgina.

Tveir karlmannanna sem  um ræðir voru saman á ferð og voru að koma frá Alicante. Annað hinna kom frá Madrid og hitt frá Barcelona.