Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Fréttir

Fáir ölvaðir unglingar í Reykjanesbæ
Hraust ungmenni úr Reykjanesbæ.
Þriðjudagur 3. júní 2014 kl. 09:19

Fáir ölvaðir unglingar í Reykjanesbæ

- helmingi færri en á landsvísu.

Einungis þrjú prósent nemenda í 10. bekk Reykjanesbæ hafa orðið ölvaðir síðastliðna 30 daga, eða helmingi færri en gengur og gerist á landsvísu. Sama hlutfall nemenda í Reykjanesbæ í 10. bekk, eða þrjú prósent, segjast hafa notað marijúana einu sinni eða oftar um ævina. Til samanburðar hafa sex prósent nemenda á sama aldri á höfuðborgarsvæðinu notað marijúana. Þessar upplýsingar eru meðal þess sem kemur fram í rannsókn sem gerð var í ár fyrir Reykjanesbæ af fyrirtækinu Rannsókn og greining.

Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri skýrir litla vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk með góðu forvarnarstarfi, kröftugu starfi kennara innan skólanna og góðu samstarfi heimila og skóla. „Kennararnir okkar eru að skila góðu starfi á öllum sviðum, líka í forvörnum. Við viljum að unglingarnir okkar séu vel undirbúnir undir framhaldsskólann þegar þeir útskrifast frá okkur. Heilbrigt viðhorf til vímuefna er hluti af því.“ 

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar