HSS
HSS

Fréttir

Fagurey strandaði við Grindavík
Þriðjudagur 12. júní 2007 kl. 09:46

Fagurey strandaði við Grindavík

Þrjátíu tonna eikarbátur, Fagurey HF 21, strandaði við innsiglinguna til Grindavíkur, þegar báturinn var að koma til hafnar laust fyrir miðnætti í gær. Þrír menn voru um borð og kölluðu þeir eftir aðstoð björgunarsveitar.

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason var sent til aðstoðar og náði að draga Fagurey af strandstað og að bryggju. Engan sakaði, en verið er að kanna hvað olli því að báturinn strandaði.

 

Mynd: Horft yfir Grindavíkurhöfn

Bílakjarninn
Bílakjarninn