Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Fagridalur 11 og Klöpp fengu viðurkenningu
Klöpp, Ægisgötu 39 í Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 19. ágúst 2014 kl. 09:58

Fagridalur 11 og Klöpp fengu viðurkenningu

– á fjölskyldudögum í Sveitarfélaginu Vogum.

Umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga veitti um nýliðna helgi tvær umhverfisviðurkenningar í sveitarfélaginu. Viðurkenningarnar voru veittar á fjölskyldudögum í Vogum.

Guðrún H. Sigurðardóttir og Reynir Ámundason að Fagradal 11 fengu viðurkenningu fyrir stílhreina, snyrtilega og vel við haldna lóð.

Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir og Rúnar Vigfússon í Klöpp, Ægisgötu 39, fengu viðurkenningu fyrir fallegar endurbætur á húsi og fjölbreyttan og áhugaverðan garð.



Fagridalur 11 í Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi
 

Public deli
Public deli