Fagna vel heppnaðri Baun
Lýðheilsuráð Reykjanesbæjar fagnar velheppnaðri barnamenningarhátíð, Baun, og hrósar þeim sem stóðu að henni. Þess má geta að um 600 manns tóku þátt Skessuskokkinu í ár og er sá viðburður búin að festa sig í sessi. Þær áherslur sem fram komu í tengslum við hátíðina undirstrika þá staðreynd að Reykjanesbær er heilsueflandi samfélag, segir í afgreiðslu lýðheilsuráðs.