HSS
HSS

Fréttir

  • Fagna hugmynd Daníels
    Daníel Alexandersson heldur á brúnni milli heimsálfa.
  • Fagna hugmynd Daníels
    Lögreglan heldur á brúnni.
Miðvikudagur 19. febrúar 2014 kl. 11:14

Fagna hugmynd Daníels

– og koma upp aðstöðu við brúna.

Nýlegri hugmynd Daníels Alexanderssonar úr Reykjanesbæ, sem birtist í Víkurfréttum á dögunum, er tekið fagnandi í umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar. Hugmynd Daníels er að fólk „haldi á“ brúnni milli heimsálfa. Brúin er á plötuskilum við Sandvík á Reykjanesi og er vinsæll áfangastaður hjá ferðamönnum.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur falið starfsfólki og formanni ráðsins að skoða framkvæmdir sem auðvelda fólki aðgengi að þeim stað sem hentar fyrir myndatökur sem veita þetta sjónarhorn, þ.e. að fólk „haldi á“ brúnni á milli heimsálfa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn