Fagna akvegasambandi með gönguhátíð
	Í tilefni af því að nú eru 100 ár frá því að hafist var handa við gerð akvegar til Grindavíkur verða gengnar nokkrar gamlar leiðir í og við Grindavík um verslunarmannahelgina 3. - 6. ágúst. Gengið verður undir merkjum „AF STAÐ á Reykjanesið“ sem mun halda þessa Menningar- og sögutengdu gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina.
	
	Föstudagur 3. ágúst:
	
	Mæting kl. 20 við tjaldsvæði Grindavíkur. Gengið verður með leiðsögn um Járngerðarstaðahverfi, gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma. Fróðleikur í Flagghúsinu í lok göngu. Aðgangur ókeypis.
	
	Laugardagur 4. ágúst:
	
	Mæting kl. 11 við tjaldsvæði Grindavíkur Genginn verður hluti af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Voga, Skógfellastígur.  Til baka verður farinn  hestaslóði. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Þátttökugjald kr. 1000.  Frítt fyrir börn.
	Í lok göngu verður boðið upp á heilgrillað lamb á teini í Salthúsinu. Verð kr. 3.100
	
	Sunnudagur 5. ágúst:
	
	Mæting kl. 11 við golfskálann í Grindavík. Gengin verður hluti af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Hafna,  Prestastígur  frá Húsatóftum í Eldvörp og Árnastígur til baka, Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm.  Þátttökugjald kr. 1000. Frítt fyrir börn.
	
	Mánudagur 6. ágúst:
	
	Mæting kl. 11 við bílastæði Bláa lónsins – Gengið með leiðsögn um hluta af gömlu þjóðleiðinni milli Grindavíkur og Njarðvíkur, Skipsstígur og með hlíðum Þorbjarnar til baka. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Þátttökugjald kr. 1000. Frítt fyrir börn.
	
	Boðið er upp aðgangseyri, 2 fyrir 1 í Bláa lónið í lok göngu.
	
	 
	Leiðsögumaður í ferðum er Sigrún Jónsd. Franklín, gsm 6918828.
	
	Nánar um ferðir á www.grindavik.is og facebook „sjf menningarmiðlun“.
	Gönguhátíðin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.

 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				