Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Fagmennska og ánægja hjá leikskólanum Hjallatúni
    Mynd úr starfsemi Hjallatúns.
  • Fagmennska og ánægja hjá leikskólanum Hjallatúni
    Gylfi Jón Gylfason.
Föstudagur 4. júlí 2014 kl. 10:00

Fagmennska og ánægja hjá leikskólanum Hjallatúni

Samkvæmt úttekt á vegum Námsmatsstofnunar.

Nýverið var gerð úttekt á leikskólanum Hjallatúni í Reykjanesbæ og var hún unnin á vegum Námsmatsstofnunar - fyrir mennta og menningarmálaráðuneytið. Skólinn kom afar vel út úr úttektinni, starfið er faglegt og í góðum gæðum og er almenn ánægja meðal foreldra, starfsmanna og barna með starfsemi skólans. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ.

Í lokaorðum skýrslunnar segir meðal annars: Starfshópurinn vinnur sem ein heild og stefnir allur að sama markmiði og leggur áherslu á stöðuga ígrundum um starfið. Rík áhersla er lögð á að mæta öllum foreldrum og börnum af virðingu og sýna öllum hlýtt viðmót. Starfið í leikskólanum og starfsumhverfið stuðlar að alhliða námi og þroska barna og má þar sérstaklega nefna áherslu leikskólans hvað varðar börn með annað móðurmál en íslensku. Starfsmenn leggja metnað sinn í að viðhalda góðu leikskólastarfi og foreldrar eru ánægðir með starfsaðferðir skólans.

Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri, er að vonum ánægður með að fagleg úttekt á starfsemi leikskólans leiði í ljós að vel og faglega sé staðið að skólastarfi í Hjallatúni. „Svona árangur er alls ekki sjálfsagður. Að baki honum liggur þrotlaus vinna allra aðila í skólasamfélaginu; Stefnan þarf að vera skýr, stjórnendur sterkir, faglegir leikskólakennarar, sterkir almennir starfsmenn og gott samstarf við foreldra,“ segir Gylfi Jón.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024