Fagháskólanám í leikskólafræðum hjá Keili
Keilir, Háskóli Íslands og sveitarfélög á Suðurnesjum hafa undirritað viljayfirlýsingu um skipulagningu fagháskólanáms í leikskólafræðum fyrir starfsfólk leikskóla á Suðurnesjum.
Námið er hagnýtt 60 ECTS starfstengt nám á háskólastigi og er stefnt á inntöku fyrstu nemenda námsins á haustönn 2020.
Með fagháskólanáminu vilja samstarfsaðilar meðal annars stuðla að:
- öflugu námi í leikskólafræðum á Suðurnesjum
- eflingu menntunar innan leikskólanna á svæðinu
- fleiri möguleikum starfsfólks leikskóla til starfsþróunar
- því að sameina styrkleika formlegrar menntunar og þeirrar reynslu sem starfsfólk leikskóla býr yfir
- samlegðaráhrifum sem verða til þegar Keilir, Háskóli Íslands, sveitarfélög og leikskólar á Suðurnesjum taka höndum saman.
Fyrirkomulag og nánari útfærsla
Námið er sett upp sem 60 ECTS einingar og skilgreint sem nám með vinnu og er áætlað að það taki tvö ár. Stefnt er að því að fagháskólanám hefjist 1. september næstkomandi.
Um er að ræða hagnýtt, atvinnutengt nám á háskólastigi sem lýkur með veitingu sérstaks prófskírteinis. Námið veitir haldgóða þekkingu á starfi með börnum í leikskólum og hentar einkum þeim sem hafa starfað sem leiðbeinendur í leikskólum og hyggjast bæta við hæfni sína og/eða hefja leikskólakennaranám. Nemendur munu fá námseiningar metnar sæki þeir um áframhaldandi nám í leikskólafræðum við Háskóla Íslands.
Námið fer fram í Keili og verður skipulagt sem sveigjanlegt nám með starfi. Kennarar í leikskólakennarafræði heimsækja nemendur í heimabyggð, í húsnæði Keilis þar sem þunginn af náminu fer fram. Nemendur fara í heimsóknir á vettvang og heimsækja einnig Menntavísindasvið Háskóla Íslands í Stakkahlíð, sem ber faglega ábyrgð á náminu.
Kennslufræðileg nálgun mun byggja á virkri þátttöku nemenda, sköpun lærdómssamfélags, og sterkum tengslum fræða og fagvettvangs. Kennsluaðferðir verða fjölbreyttar og felast m.a. í vendinámi, einstaklings- og hópavinnu, vettvangsferðum og valdeflingu hvers nemanda.
Markhópur
Námið er hluti af háskólanámi í leikskólakennarafræði en með góðum stuðningi. Öll námskeið sem nemendur taka nýtast þeim þannig í áframhaldandi námi. Umsækjendur þurfa að hafa stúdentspróf eða uppfylla skilyrði um undanþágu til háskólanáms meðal annars af Háskólabrú Keilis. Markhópur námsins eru leiðbeinendur sem starfa í leikskólum á Suðurnesjum.
Kynningarfundur um námið
Keilir og Menntavísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir kynningarfundi um fagháskólanám í leikskólafræðum, miðvikudaginn 3. júní kl. 16:15 í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ. Námið er samstarfsverkefni Keilis, HÍ og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Starfsfólk og kennarar Háskóla Íslands og Keilis kynna námið og námsráðgjafar verða á staðnum. Þá verður hægt að fræðast um nýstárlega kennsluhætti og skoða sveigjanleg námsrými Keilis sem aðlaga sig að þörfum og kröfum nútíma nemenda.
Umsókn og nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um námið verða birtar fljótlega á heimasíðu Keilis en áhugasamir geta einnig sent póst á [email protected]