Bygg
Bygg

Fréttir

Fæstir íbúar í hverri íbúð í Reykjanesbæ
Laugardagur 9. júlí 2016 kl. 06:00

Fæstir íbúar í hverri íbúð í Reykjanesbæ

Færri búa að meðaltali í hverri íbúð í Reykjanesbæ en tíðkast í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem gefin var út í dag.

Í Hagsjánni segir að langfæstir hafi búið í hverri íbúð í Reykjanesbæ árið 2014, eða tveir en næst fæstir í Reykjavík, 2,4 íbúar. Miklar breytingar urðu í þessum efnum í Reykjanesbæ á árinu 2007. Bæði var byggt mikið á þessum árum og svo má ætla að viðbótarhúsnæði af varnarsvæðinu skipti miklu máli hvað þessa þróun varðar. Þá segir í Hagsjánni að þróunin í Reykjavík hafi verið stöðugri en í hinum sveitarfélögunum á svæðinu og nær óbreytt frá 2006. Flestir eru íbúarnir í íbúðum í Garðabæ og Hafnarfirði þar sem meðaltalið er 2,8. Þróunin verið töluverð upp á við í báðum bæjarfélögunum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Upp úr 1960 var þróunin sú að sífellt færri bjuggu í hverri íbúð en hún hefur nú tekið viðsnúning sé tekið tillit til alls landsins. Almennt búa fleiri Íslendingar í hverri íbúð nú en fyrir bankahrun. Sem dæmi voru 2,43 íbúar í hverri íbúð árið 2010 en 2,46 árið 2014. Í Hagsjáinni kemur fram að væntanlega sé þróunin ein af afleiðingum bankahrunsins. 

Talið er að húsnæði á Ásbrú hafi skipt miklu varðandi þróun á fjölda íbúa í hverri íbúð í Reykjanesbæ.