Færeyingar heimsóttu Samherja fiskeldi við Grindavík
Rúmlega fjörutíu verkfræðingar á vegum færeyska fyrirtækisins SMJ heimsóttu Samherja fiskeldi á Suðurnesjum. SMJ kemur að hönnun mannvirkja Samherja fiskeldis, svo sem nýrra seiðisstöðva félagsins á Stað við Grindavík og Silfurstjörnunnar í Öxarfirði.
Hjalti Bogason, rekstrarstjóri Samherja fiskeldis, segir að starfsmenn færeyska verkfræðifyrirtækisins í nokkrum þjóðlöndum hafi komið saman á Íslandi og meðal annars kynnt sér framkvæmdirnar á Stað.
„Við þekkjum ágætlega til þessa fyrirtækis sem hefur verið samstarfsaðili okkar við uppbyggingu á starfseminni, nú síðast á Stað og í Öxarfirðinum. Með því að taka á móti hópnum skapaðist kærkomið tækifæri til að treysta samskiptin. SMJ er öflugt fyrirtæki á sviði verkfræðihönnunar og hefur víða komið við, m.a. í uppbyggingu fiskeldisstöðva, enda fiskeldi gríðarlega stór og mikil atvinnugrein í Færeyjum eins og við þekkjum. Svona heimsóknir eru alltaf góðar, þá gefst kærkomið tækifæri til að fara yfir málin frá ýmsum hliðum, auk þess sem persónuleg samskipti eru alltaf af hinu góða. Þetta var nokkuð stór hópur, rúmlega fjörutíu manns. Við brugðum á það ráð að fá golfskálann í Grindavík til að kynna fyrirtækið í máli og myndum og auðvitað fór dágóður tími í að skoða starfsemina og öll mannvirki. Þetta var kærkomin heimsókn og styrkir tengslin án efa enn frekar,“ sagði Hjalti Bogason, rekstrarstjóri Samherja fiskeldis.