Færanleg veðursjá sett upp við Voga
Veðurstofa Íslands óskaði eftir því við skipulagsyfirvöld í Sveitarfélaginu Vogum að fá að setja upp færanlega veðursjá fyrir ofan Voga.
Í erindinu segir að ekki er gert ráð fyrir miklu jarðraski og er fyrirséð að ratsjáin muni sinna mikilvægu vöktunarhlutverki í næsta eldgosi á Suðurnesjum.
Afgreiðsla skipulagsnefndar er að hún gerir ekki athugasemd við erindið. Hins vegar varð næsta eldgos aðeins sólarhring eftir að nefndin samþykkti erindið og því kom veðursjáin væntanlega ekki að gagni við upphaf þess goss.