Bygg
Bygg

Fréttir

Fækkar um 70 í Grindavík
Frá Grindavík. Ljósmynd: Vilhelm Gunnarsson
Miðvikudagur 7. febrúar 2024 kl. 10:23

Fækkar um 70 í Grindavík

Grindvíkingar voru 3.650 talsins þann 1. febrúar sl. og hefur fækkað um sjötíu frá 1. desember 2023. Þetta kemur fram í tölum Þjóðskrár yfir íbúa eftir sveitarfélögum. Þó svo Grindvíkingar hafi allir sem einn þurft að flytja að heiman eftir 10. nóvember á síðasta ári stóð þeim áfram til boða að vera skráðir með heimilisfesti í Grindavík og standa þannig með sínu sveitarfélagi. Þrátt fyrir þetta er fækkun um sjötíu manns raunin eða 1,9% íbúa.

Á sama tímabili hefur íbúum í Sveitarfélaginu Vogum fjölgað um 21 eða 1,3% en íbúar sveitarfélagsins voru 1.587 þann 1. febrúar. Í Reykjanesbæ er 0,4% fjölgun. Íbúarnir eru 23.377 og fjölgaði um 86 á tímabilinu. Þá fjölgaði um tvo í Suðurnesjabæ. Íbúar þar eru 4.038 talsins þann 1. febrúar.

Alls eru Suðurnesjamenn 32.652 talsins og fjölgaði um 39 frá 1. desember. Það þýðir að fækkunin í Grindavík er ekki að skila sér að fullu í önnur sveitarfélög á Suðurnesjum. Fækkunin getur einnig verið erlent vinnuafl sem hefur ekki skilað sér til baka vegna náttúruhamfara í Grindavík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn