Fæðingardeildinni lokað í sumar
Fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja verður lokað í sex vikur í sumar. Engin þjónusta verður veitt á vegum fæðingardeildarinnar á tímabilinu 30. júní til 8. ágúst en mæðravernd verður þó opin.
Guðrún Guðbjartsdóttir, ljósmóðir, sagði í samtali við Víkurfréttir í gær, að ljósmæður við stofnunina væru mjög ósáttar við þessa niðurstöðu framkvæmdastjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Ljósmæður hafi ekki verið hafðar með í ráðum og hafi ekkert fengið að segja um þessa niðurstöðu að skella í lás og þetta væri því sem blaut tuska framan í þær, en ekki síst unga fólkið hér á Suðurnesjum sem ætti von á barni í sumar.
Þessar sex vikur sem fæðingardeildin verður lokuð verður engin þjónusta veitt verðandi eða nýbökuðum foreldrum, umfram það sem mæðraverndin veitir. Komi t.a.m. upp erfiðleikar hjá mjólkandi mæðrum verði að leita með það vandamál og öll önnur til Reykjavíkur.
Guðrún sagði að lokunin í sumar myndi snerta að lágmarki um 40 verðandi mæður miðað við tíðni fæðinga í dag. „Þetta má bara ekki gerast,“ sagði Guðrún í samtali við Víkurfréttir. Guðrún nefndi þá fjölgun sem sé staðreynd á Suðurnesjum og sérstaklega í háskólasamfélaginu á Vallarheiði. Verðandi mæður þar hafi sett traust sitt á fæðingardeildina á HSS sem sé rómuð víða fyrir þægilegt umhverfi og þá þjónustu sem foreldrar fá hjá deildinni.
---
Myndin: Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra skoðaði fæðingardeildina á mánudaginn. Tæpum tveimur sólarhringum síðar fá ljósmæðurnar að vita að deildinni verður skellt í lás í sex vikur í sumar. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi