Föstudagur 14. apríl 2000 kl. 23:05
Faðir í slagsmálum við syni sína
Það hefur ekki bara verið órói í veðrinu í kvöld því einnig hefur verið róstursamt á heimilum. Þannig hefur lögreglan þurft að hafa afskipti af heimilisherjum í Grindavík. Þar var tilkynnt um föður, sem var ölvaður, í slagsmálum við syni sína. Lögreglan var send á vettvang til að koma á friði.